HEILSUGÆSLAN

English information:

FjolmenningaseturThe Akureyri Primary
Health Care Centre

 
Heilsugæslustöðin starfar skv. lögum um
heilbrigðisþjónustu
Opnunartími:  

Heilsugæslustöðin er opin frá kl. 08 - 16:00. Heimilislæknar sinna vaktlæknaþjónustu eftir að dagvinnutíma lýku og eru daglega með móttöku á slysadeild FSA kl. 17-21 virka daga og kl. 10-12 og 14-16 á frídögum.

Vaktlæknar sinna bráðum útköllum og vitjunum og geta þurft að fara frá auglýstri móttöku á opnunartíma.

Á nóttunni svara hjúkrunarfræðingar slysadeildar í vaktsíma og gefa símtöl áfram til vaktlæknis eftir þörfum. Vaktsími er 848 2600 fyrir bráðaerindi.

Aðsetur:   Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð. Inngangur er frá göngugötu (Amaróhúsið), frá Hafnarstræti 97 (Krónan 5. hæð) og frá Gilsbakkavegi í gegnum Krónuna. Þar eru bílastæði fyrir fatlaða.
Sími:   Aðalsími er 460 4600, en hvatt er til þess að hringt sé beint til lækna stöðvarinnar í símatímum þeirra og til annarra starfsmanna eftir atvikum (beint innval). Pantanir á viðtalstíma hjá læknum eru hjá móttökuriturum. Símanúmer 3. hæðar 460 4630, 5.hæðar: 460 4650 og 6. hæðar 460 4660.
Bréfasími:   461 2605
Tengiliðir:   Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri og hjúkrunarforstjóri (mg@hak.ak.is) og Jón Torfi Hallldórsson yfirlæknir (hak@hak.ak.is)
Hlutverk:   Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
Heilsugæslustöðin á Akureyri sér um lækninga- heilsuverndar- og hjúkrunarstarf utan sjúkrahúsa á Akureyri og nágrenni, nema nokkra þætti sem aðrir aðilar sjá um.
 Skipurit HAK
Nokkrir gagnlegir tenglar um heilsufarsleg efni.