Anna Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin til starfa hjá færni- og heilsumatsnefnd norðurlands (áður vistunarmatsnefnd). Anna hefur aðsetur á Heilsugæslustöðinni á Akureyri og mun starfa með Rannveigu Guðnadóttur fyrir nefndina. Færni- og heilsumatsnefnd hefur núna umsjón með hvíldarinnlögnum í stað heimahjúkrunar áður, ásamt umsóknum um varanlegrar búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Hérna má lesa nánar um starfsemina og finna viðeigandi umsóknareyðublöð.
Heilsugæslustöðin á Akureyri
Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.
Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

