Heilsuvefurinn 6H

Heilsuvefurinn 6H er fróðleikur um heilsu frá fagfólki. Þetta er samvinnuverkefni heilsugæslu, Embættis landlæknis og Landspítala. Þar má finna fjölbreyttan fróðleik um heilsu barna og unglinga ætlaðan foreldrum, unglingum og börnum.  H-in 6 eru uppistaðan í fræðslu skólahjúkrunarfræðinga til grunnskólabarna og standa fyrir hamingju, hollustu, hreinlæti, hugrekki, hreyfingu og hvíld. Vefurinn er með facebook síðu sem nýtur vaxandi vinsælda. http://www.6h.is/