Færni og heilsumatsnefnd Norðurlands

Færni- og heilsumat er faglegt, einstaklingsbundið mat á þörfum einstaklinga fyrir búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Um er að ræða staðlað mat ásamt skilgreindum upplýsingum frá heilbrigðis- og félagsþjónustu og svæðisskrifstofu málefna fatlaðra auk læknabréfa frá læknum viðkomandi eftir því sem við á. Færni og heilsumatsnefnd Norðurlands er staðsett á HAK eins og sjá má á upplýsingum hér til hægri.

Færni- og heilsumatsnefndin sér um mat á varanlegri og tímabundinni búsetu á hjúkrunar - og dvalarheimilum. Umsóknareyðublöð má prenta út hér.

Nánari upplýsingar um færni og heilsumat má lesa um á heimasíðu Embætti Landlæknis.