Fréttir

Flugslysaæfing

Vaktlæknir HAK við greiningu á vettvangi
Á laugardaginn tók heilsugæslan þátt í viðamikilli flugslysaæfingu á Akureyri. Flugslysaæfingar eru almannavarnaæfingar þar sem allir viðbragðsþættir vegna flugslyss eru prófaðir, þar með talið slysarannsókn og úrvinnsla. Líkt var eftir því að stórri farþegaþotu hlekktist á við flugvöllinn. Æfðar voru björgunar- og slökkviaðgerðir, greining og aðhlynning slasaðra auk umönnunar óslasaðra og aðstandenda. Sérstök áhersla var lögð á samhæfingu vegna flutnings á slösuðum, boðunarkerfi, stjórn, samhæfingu, fjarskipti, rannsókn á vettvangi og fleira.

Takk fyrir þolimæðina

Síðasta vika var mjög erilsöm og mjög margir sem óskuðu eftir endurnýjun lyfja vegna breytinga á greiðsluþátttökukerfis. Upplýsingar um nýja kerfið er að finna á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands, www.sjukra.is. Við á HAK þökkum íbúum þolinmæðina þrátt fyrir langa bið í símatímum og eftir viðtalstímum. Við gerum okkar besta til að leysa úr málum þrátt fyrir að það geti tekið lengri tíma.

Mikill erill á heilsugæslunni

Mikið er að gera þessa daganna á heilsugæslunni og getur fólk þurft að bíða lengur en venjulega eftir afgreiðslu. Bæði eru óvenju fáir læknar að störfum í apríl og maí og svo eru ýmsar pestir að herja á bæjarbúa og margir að huga að lyfjamálum vegna fyrirhugaðra breytinga á greiðsluþáttöku lyfja. Við biðjum fólk að sýna þolinmæði og helst að vera tímalega með erindi sín. Hjúkrunarfræðingar og ritarar taka við ýmsum erindum fyrir lækna og sameiginlega gerum við okkar besta til að leysa úr vandanum, þó það taki stundum lengri tíma en áður. Gleðilegt sumar.

Samið um tannlæknaþjónustu fyrir börn

Tímamót urðu þegar undirritaður var samningur á milli Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands um tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára. Liðið er 21 ár frá því að síðast var gerður heildstæður samningur um tannlækningar en sá samningur rann út í árslok 1998. Lesa meira

Breyting á símsvörun í síma vaktlæknis

Heilsugæslan og 112 hafa sett af stað reynsluverkefni þar sem neyðarverðir munu svara í síma vaktlæknis utan dagvinnutíma. Fólk hringir áfram í sama númer: 848 2600 og 112 mun leiðbeina þar sem það á við og beina brýnum erindum til vaktlækna. Við neyðartilvik verða viðhöfð hefðbundin viðbrögð 112. Þessi breyting mun gera vaktlæknum kleift að sinna betur bráðveikum sjúklingum og brýnum erindum á vaktlæknamóttöku á bráða - og slysamóttöku FSA.