Verðandi og nýorðnir foreldrar

Á meðgöngu er verðandi foreldrum boðið upp á stuðning og ráðgjöf til að sem best megi til takast með barnið sem er í vændum. Metið er í samráði við

Flýtilyklar

Verðandi og nýorðnir foreldrar

Á meðgöngu er verðandi foreldrum boðið upp á stuðning og ráðgjöf til að sem best megi til takast með barnið sem er í vændum. Metið er í samráði við verðandi foreldra hvort og þá hvaða stuðningur eigi best við í hverju tilfelli fyrir sig. Ljósmæður í mæðravernd vísa á fjölskylduráðgjöf, svo og hjúkrunarfræðingar í ungbarnavernd og heimilislæknar. Einnig getur fólk leitað beint til fjölskylduráðgjafa í símatíma.

Verðandi foreldrar og nýorðnir foreldrar hafa forgang að fjölskylduráðgjöf HAK, meðal annars til að:

  • undirbúa foreldrahlutverkið og efla foreldrahæfni

  • vinna úr erfiðri fyrri fæðingarreynslu

  • vinna með kvíða, depurð eða tilfinningalega vanlíðan

  • vinna með erfiðleika eða áföll í tengslum við eigið uppeldi 

  • vinna með fæðingarþunglyndi eða tengslaerfiðleika við barnið

  • vinna með erfiðleika í sambúð milli hjóna/para



Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:20
+0.9°SSV 2 m/s
  • Hausmynd - heilsugæsla

    Heilsugæslustöðin á Akureyri

    Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

    Sími Heilsugæslunnar er 460 4600

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri – Hafnarstræti 99, 3.-6. hæð – 600 Akureyri – Simi 460 4600 – Fax 461 2605 – hak@hak.ak.is