Fagráð um fjölskylduvernd

Samráðsvettvangur Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar (FD) og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (HAK).

Markmið: Meginmarkmið er að nýta sameiginlega krafta beggja deilda til aukinna forvarna og fjölskylduverndar. Með því að samhæfa betur starfsfólk sem vinnur að málefnum sömu einstaklinga þá má bæta þjónustu beggja deilda við notendur þannig að þeir eflist til aukinna lífsgæða.

Það er gert í anda fjölskyldustefnu með því að:
iðla viðeigandi upplýsingum milli deilda og stofnanna.
Leggja upp sameiginleg markmið í einstökum málum þegar það á við. Gera alla vinnslu í málum markvissari, koma í veg fyrir tvíverknað og nýta viðeigandi úrræði.

Verkefni fagráðs:: Fagráð vinnur að sameiginlegum lausnum á málefnum einstaklinga/fjölskyldna FD og HAK. Fagráð tekur fyrir nafnlaus málefni einstaklinga (leiðsögn um feril einstakra mála). Fagráðið tekur púlsinn á ástandi hópa / einstaklinga í bæjarfélaginu. Fagráðið rýnir í þróun og samhæfingu á milli deilda, í samvinnu við stjórnendur og kemur með lausnir til úrbóta. Fagráðið, í samvinnu við stjórnendur, sér um að haldnir séu sameiginlegir fræðslufundir með starfsmönnum beggja stofnanna. Á þeim fundum verða m.a. tekin upp ýmis mál tengd þjónustu deildanna svo og málefni ýmissa hópa og nýjungar kynntar.

Skipulag: Fagráðið er skipað fjórum fulltrúum, tveimur frá hvorri stofnun. Ráðið finnur sér fastan fundartíma tvisvar í mánuði 1 klst. í senn og fastan fundarstað. Fyrirkomulag funda er tvíþætt: 1. Einu sinni í mánuði sinnir fagráðið verkefnum 1 – 3. Ákveðinn verði tengill frá hvorri stofnun en þeir setja upp dagskrá fyrirfram og sjá um að afgreiðslur mála séu skráðar á þar til gerð eyðublöð. Ennfremur boða þeir aðra aðila frá HAK og Fj. deild til fundar sem aðild eiga að máli, svo sem heimilislækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæður, fjölskylduráðgjafa, sálfræðinga, félagsráðgjafa og sérkennsluráðgjafa. Starfsmenn á báðum deildum bera sjálfir ábyrgð á að koma málum sem þeir eru ábyrgir fyrir til umfjöllunar í ráðinu. Öll einstaklingsmál sem tekin eru upp með nafni hafa áður fengið skriflegt samþykki notenda. 2. Einu sinni í mánuði á tilraunatímanum fundar fagráðið með stjórnendum að verkefnum 3 – 5 ásamt því sem upp kann að koma hverju sinni. Fagteymið er tilraunaverkefni sem unnið verður frá september 2004 til maí 2005 og þá endurmetið.

Áfangaskýrsla Fagráðs_2004-2005

Fagráð Starfsemi_2006