Fjölskylduráðgjöfin er til húsa á 5. hæð HAK.
Á heilsugæslustöðinni er lögð áhersla á fjölskylduforvarnir og þá sérstaklega með þverfaglegri þjónustu við verðandi og nýorðna foreldra, í þeim tilgangi að hlúa að innviðum fjölskyldunnar, að efla foreldrahæfni og fjölskylduheilbrigði. Lögð er áhersla á virðingu og skilning í viðhorfum og viðmóti og að mæta misjöfnum þörfum fólks fyrir stuðnings- og meðferðarúrræði. Byggt er á þeim viðhorfum að heilsuvandi og áhrif hans á einu æviskeiði verði vart skilið nema í tengslum við það sem á undan er gengið á lífsbrautinni og í fjölskyldusögunni. Fjölskylduráðgjöfin hefur umsjón með samhæfingu og þróun á þessari þjónustu í samvinnu við aðra faghópa HAK og tekur þátt í fræðslu fyrir verðandi og nýorðna foreldra.
Öllum íbúum í umdæmi heilsugæslustöðvarinnar stendur þjónusta fjölskylduráðgjafar HAK til boða en forgangshópar eru verðandi foreldrar, foreldrar ungra barna, einstæðir foreldrar og fjölskyldur grunnskólabarna. Þeim sem óska eftir þjónustu er bent á að hringja í fjölskylduráðgjafa í símatíma þar sem hægt er að fá ráðleggingar, áframhaldandi þjónusta er ákveðin eða vísað á aðra staði. Einnig er hægt að panta tíma eftir milligöngu og tilvísun annara fagaðila.
Í fjölskylduráðgjöfinni eru starfandi tveir fjölskylduráðgjafar og ritari, sem gefur upplýsingar um þjónustuna. Opið er daglega kl. 8-16. Þjónustan er hluti af heilsuvernd heilsugæslunnar og gjaldfrjáls.
Fjölskylduráðgjöfin leggur áherslu á fjölskylduforvarnir og þá sérstaklega í samvinnuverkefninu ?Nýja barnið? með þverfaglegri þjónustu við verðandi og nýorðna foreldra í þeim tilgangi að efla foreldrahæfni og fjölskylduheilbrigði. Öll meðferð og nálgun miðar að því að efla sjálfsskilning og tilfinningatengsl
Algengast er að fólk leiti til fjölskylduráðgjafar vegna tilfinningalegrar vanlíðan, áfallaúrvinnslu, kynferðisofbeldis og ráðgjafar vegna uppeldismála, sambúðarerfiðleika og skilnaðarúrvinnslu (ráðgjöf til foreldra vegna forsjármála er að öllu jöfnu vísað til Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar).
Starfsemin fer fram í símatímum, viðtölum og námskeiðum/fræðslu. Í símatímum er gefin ráðgjöf, veittar upplýsingar og ákveðinn viðtalstími eða málum vísað annað eftir eðli og þjónustumöguleikum. Í viðtalstímum er boðið upp á meðferð og ráðgjöf. Lögð er áhersla á að efla sjálfsstyrk foreldra og hjálpa þeim að styðja börn sín gegnum ýmiskonar áföll og erfiðleika. Fjölskylduráðgjöfin tekur einnig þátt í námskeiðum fyrir verðandi og nýorðna foreldra og hefur með höndum ýmiskonar fræðslu og sjálfsstyrkingu.
Starfsmenn:
Karólína Stefánsdóttir yfirfjölskylduráðgjafi/félagsráðgjafi, sími 460 4657, kl. 10-11 þriðjudaga og fimmtudaga.
Jirí Jón Berger sálfræðingur, sími 460 4628, miðvikudaga kl. 11-12
Ritari fjölskylduráðgjar er Sigurbjörg Haraldsdóttir (sibba@hak.ak.is), sími 460 4658.

