Leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum fer fram u.þ.b. 2 daga í mánuði á FSA, gengið inn um slysadeildarinngang. Lokað er í júlí og ágúst. Tímapantanir eru alla daga kl. 8:00-16:00 í síma 460 4600.
Umsjón með leitinni hefur Sólveig H. Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, (solveig@hak.ak.is).
Kvensjúkdómalæknar frá FSA sjá um leitina.
Allar konur á aldrinum 20-69 ára eru boðaðar með bréfi frá Krabbameinsfélagi Íslands í skoðun á tveggja ára fresti. Tekið er strokusýni frá leghálsi og brjóstamyndataka er gerð hjá konum 40 ára og eldri.

