Efst á baugi
Frá Lýðheilsustöð: Fitusýrur í matvælum - ný greining
Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti. Nánar má sjá í frétt frá Lýðheilsustöð: Hér.

