header2

Heilsugæslustöðin á Akureyri

Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

Efst á baugi

Félagsmálanefnd alþingis í kynnisferð

Félagsmálanefnd alþingis kom til Akureyrar í gær til að kynna sér aðferð bæjarins við samþættingu verkefna á sviði fötlunar, heilsugæslu og öldrunar við aðra þjónustu sem rekin er af sveitarfélaginu.

Félagsmálanefnd alþingis kom til Akureyrar í gær til að kynna sér aðferð bæjarins við samþættingu verkefna á sviði fötlunar, heilsugæslu og öldrunar við aðra þjónustu sem rekin er af sveitarfélaginu.

Á Akureyri er 10 ára reynsla komin af rekstri þessara málaflokka sem annarsstaðar eru reknir af ríkinu. Óhætt er að segja að helstu markmiðum hafi verið náð og árangurinn hafi skilað sér í aukinni samvinnu milli þjónustukerfa og samþættingu á þjónustu sem fyrir vikið er heildstæðari og meira í takt við þarfir íbúanna. Sem dæmi má nefna samvinnu heimahjúkrunar og heimaþjónustu sem hefur bætt þjónustu, gert fólki kleift að búa lengur heima og aukið hægræði.

Ný og breytt úrræði hafa einnig orðið til þegar ekki hefur náðst að sinna þörfum með þjónustu sem fyrir er. Dæmi um það eru:
 Heilsueflandi heimsóknir til aldraðra en það er fyrirbyggjandi heilsuvernd sem býðst öllum 75 ára og eldri sem búa heima án heimahjúkrunar. 
Ráðgjöfin heim er þjónusta sem miðar að því að aðstoða geðfaltaða eninstaklinga við sjálfstæða búsetu. Reynslan var að  venjuleg heimaþjónusta hefur ekki verið að nýtast þeim sérlega vel en iðjuþjálfar sem standa að ráðgjöfinni heim, hafa náð að byggja upp úrræði sem auka sjálfsbjargargetu og sjálftraust þeirra sem þjónustuna þiggja.
Skjöldur er sérskóladeild innan Hlíðarskóla og er samvinnuverkefni skóladeildar, fjölskyldudeildar, heilsugæslu og barna og unglingadeildar FSA. Í Skildi eru börn sem eiga við mikil geðræn og þroskavandamál að stríða og þar fá þau heildstæð meðferðar og kennsluúrræði.




Útlit síðu:

header2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica