header2

Heilsugæslustöðin á Akureyri

Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

Efst á baugi

Heilbrigðisnefnd Alþingis kynnir sér málin á Akureyri - 21.9.2007

Mikill áhugi er á reynslu Akureyringa af samþættingu þjónustu á sviði heilbrigðismála, öldrunarmála, félagsmála, skólamála og málefnum fatlaðra. Í gær heimsótti heilbrigðisnefnd Alþingis Akureyri og átti meðal annars fund á heilsugæslunni með framkvæmdastjórum þessara málaflokka. Lesa meira
 

Norskir embættismenn í náms- og kynnisferð - 11.9.2007

Níu embættismenn fram sveitarfélaginu Stord í vestur Noregi eru þessa dagana í náms og kynnisferð á Akueyri. Þeir koma hingað til að heyra um árangur bæjarins í samþættingu og samvinnu milli faghópa og mismunandi þjónustukerfa. Lesa meira
 

Félagsmálanefnd alþingis í kynnisferð - 7.9.2007

Félagsmálanefnd alþingis kom til Akureyrar í gær til að kynna sér aðferð bæjarins við samþættingu verkefna á sviði fötlunar, heilsugæslu og öldrunar við aðra þjónustu sem rekin er af sveitarfélaginu. Lesa meira
 

Reyklaus.is - nýtt tæki í baráttunni við tóbaksfíknina - 4.9.2007

Á undanförnum árum hafa Íslendingar staðið sig vel í tóbaksvörnum sem leitt hefur til þess að einungis 19% landsmanna á aldrinum 15-89 ára reykir daglega, sem er með því minnsta sem þekkist í Evrópu. Sá þáttur sem hinsvegar hefur ekki verið sinnt sem skyldi á Íslandi er aðstoð við fólk sem vill hætta tóbaksnotkun. Einn liður í að gera þar úrbætur er að setja á fót gagnvirka heimasíðu, þar sem fólk getur leitað sér aðstoðar við að hætta að reykja. Lesa meira
 

Ný heilbrigðislög - 4.9.2007

Þann 1. septemger tóku gildi ný lög um heilbrigðisþjónustu sem samþykkt voru á Alþingi síðast liðið vor. Eldri lög um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 voru að stofni til frá árinu 1973 og voru orðin úrelt og óskýr í ýmsum atriðum. Sjá nánar í fréttum frá  Heilbrigðisráðuneytinu
 

Friðrik Vagn Guðjónsson heilsugæslulæknir í leyfi - 3.9.2007

Friðrik Vagn Guðjónsson, heilsugæslulæknir verður í árs leyfi frá störfum sínum á HAK f.o.m. 1.sept.07.

Jón Torfi Halldórsson, læknir, mun sinna málum Friðriks Vagns á meðan. Engin breyting verður á móttöku eða símatímum.

 

Heilsugæslustöðin á Akureyri

Að velja heimilislækni

Fylla þarf út og undirrita umsóknareyðublað, sem má fá í afgreiðslunni á III. hæð eða fylla út eftirfarandi eyðublað: Umsokn_um_heimilislaekni
Útfylltar umsóknir má afhenda á HAK eða senda sem viðhengi á netfangið: erla@hak.ak.is

Því miður er ekki laust hjá neinum heimilislækni eins og er en heimilislæknislausum er bent á að skrá sig á heilsugæslustöðinni.

Skráning á heilsugæslustöð

Ef ekki er hægt að bjóða upp á skráningu hjá heimilislækni gefst fólki kostur að skrá sig á stöðina; sjá nánar hér.




Útlit síðu:


header2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica