header2

Heilsugæslustöðin á Akureyri

Markmið Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri er að stuðla með öllum tiltækum ráðum að því að efla, bæta og viðhalda heilbrigði sem eykur vellíðan og velferð íbúanna á þjónustusvæði stöðvarinnar.

Efst á baugi

Nýr heimilislæknir - 23.8.2010

Jón Pálmi Óskarsson

tekur til starfa sem heimilslæknir á HAK þann 1. september nk. Hann mun taka við fyrrum sjúklingum Hjálmars Freysteinssonar. Þeir þurfa ekki að skrá sig hjá Pálma. Til að byrja með er því miður ekki hægt að skrá aðra sjúklinga hjá Pálma en þá sem áður voru hjá Hjálmari. Þeir sem ekki hafa fastan heimilislækni er bent á að skrá sig á stöðina og þeir geta bókað viðtalstíma hjá þeim lækni sem þeir óska eftir.

 

Viðbúnaðarstig vegna svínainflúensu lækkað - 16.8.2010

Þann 10. ágúst 2010 lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin því yfir að heimsfaraldur inflúensu (svínainflúensa) væri genginn yfir og viðbúnaðarstig vegna faraldursins yrði því lækkað. Jafnframt hvetur stofnunin til ýtrustu árvekni því reynslan hefur sýnt að heimsfaraldrar ganga yfir í síðari bylgjum sem erfitt er að spá fyrir um Lesa meira
 

Sumarleyfi - 29.6.2010

Núna er sumarleyfistími hjá starfsfólki heilsugæslunnar, langþráð orlof eftir sérlega annasaman vetur með miklu álagi sökum hagræðingar og  inflúensufaraldurs.

Eins og á flestum öðrum opinberum stofnunum hefur þurft að draga saman í afleysingum og það hefur áhrif á þjónustuna. Búast má við aukinni bið eftir tímum og að lengri tíma taki að afgreiða erindi, en starfsfólk gerir sitt besta í þröngri stöðu.

Biðjum við fólk að sýna þessu skilning og hafa biðlund og minnum jafnframt á að neyðartilvikum er sinnt á bráðadagvakt kl. 15 daglega og af vaktlækni á slysadeild FSA eftir dagvinnutíma. Sími vaktlæknis er: 848 2600 

 

Heilbrigðiskerfið 2015 - 21.6.2010

Í tengslum við stofnfund Landssambands heilbrigðisstofnana verður haldin ráðstefna á Grand hótel föstudaginn 25. júní kl. 13.00-16.30.

Þar verður reynt að svara áleitnum spurningum um það hvernig heilbrigðiskerfið muni komast í gegnum niðurskurð og þrengingar sem framundan eru.

Lesa meira
 

Unglingamóttakan lokuð fram á haust - 21.6.2010

Að venju lokar unglingamóttakan á sumrin. Ungu fólki er bent á að hafa samband við heimilislækna eða hjúkrunarfræðinga.  Sjá nánar hér.
 

Heilsugæslustöðin á Akureyri

Að velja heimilislækni

Fylla þarf út og undirrita umsóknareyðublað, sem má fá í afgreiðslunni á III. hæð eða fylla út eftirfarandi eyðublað: Umsokn_um_heimilislaekni
Útfylltar umsóknir má afhenda á HAK eða senda sem viðhengi á netfangið: erla@hak.ak.is

Því miður er ekki laust hjá neinum heimilislækni eins og er en heimilislæknislausum er bent á að skrá sig á heilsugæslustöðinni.

Skráning á heilsugæslustöð

Ef ekki er hægt að bjóða upp á skráningu hjá heimilislækni gefst fólki kostur að skrá sig á stöðina; sjá nánar hér.




Útlit síðu:


header2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica