Úthlutun byggðakvóta

Mynd: Friðþjófur Helgason.
Mynd: Friðþjófur Helgason.

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2011/2012 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 1182, 21. desember 2011. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:

Kaldrananeshreppur (Drangsnes)
Akureyri (Grímsey)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 297/2012 í Stjórnartíðindum:

Sveitarfélagið Vogar
Vesturbyggð  (Brjánslækur, Bíldudalur)
Árneshreppur
Strandabyggð (Hólmavík)
Blönduósbær  (Blönduós)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fjallabyggð  (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Akureyri (Hrísey)
Grýtubakkahreppur (Grenivík)
Vopnafjarðarhreppur (Vopnafjörður)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2012.

Fiskistofa, 27. mars 2012.