Sólstöđuhátíđ verđur haldin í Grímsey um nćstu helgi. Ţetta er í ţriđja sinn sem slíkt hátíđ er haldin. Ţađ er kvenfélagiđ Baugur sem stendur ađ hátíđinni en hátíđarstjóri er Gísli Sigurgeirsson.
Margt verđur sér til gamans gert, enda Grímseyingar gestrisnir og góđir heima ađ sćkja. Vegleg ljósmyndasýning verđur sett upp viđ höfnina og víđar um eyjuna. Flestar myndirnar eru eftir Friđţjóf Helgason, ljósmyndara og kvikmyndagerđarmann, sem á ćttartengsl viđ Grímsey. Fyrir hádegi á laugardaginn verđur bođiđ upp á gönguferđ međ leiđsögn Bjarna Magnússonar sem er síđasti hreppsstjóri á Íslandi. Lífiđ í Grímseyjarbjörgum er ólýsanlegt á ţessum árstíma. Heimamenn ćtla ađ sýna bjargsig og međal ţeirra er hreppsstjórinn, sem er ađ verđa áttrćđur. Bjarni segir eggin fjörgandi, enda telja ?sérfrćđingar? sannađ, ađ flestir Grímseyingar séu fćddir níu mánuđum eftir eggjatíđ.
Álftagerđisbrćđur verđa međ tónleka í félagsheimilinu á föstudagskvöldiđ og Gunnar Ţórđarson heldur tónleika í Miđgarđakirkju á laugardeginum. Ţá verđa einnig uppákomur viđ höfnina, bođiđ upp á sjóferđir umhverfis eyjuna og einnig geta gestir fengiđ ađ reyna sig á sjóstöng.
Hápunktur hátíđarinnar verđur sćlkeraveisla í félagsheimilinu, ţar sem kvenfélagskonur bera fram ?konfekt? úr matarkistu eyjarinnar, sem ţćr matreiđa undir stjórn Gunnars Karls Gíslasonar, matreiđslumeistara á veitingastađnum Dill í Norrćna húsinu í Reykjavík. Gunnar Karl er í kokkalandsliđinu og hefur á undanförnum sólstöđuhátíđum komiđ Grímseyingum og gestum ţeirra á óvart međ óvenjulegum réttum. Hann notar eingöngu hráefni úr matarkistu eyjarinnar; fisk, fugl, hrefnu, höfrung, svartfuglsegg, skarfakál og stolinn rabbarbara, svo nokkuđ sé nefnt.
Dagskrá Sólstöđuhátíđarinnar er ađ finna HÉR.

Bjarni hreppsstjóri ćtlar ađ bregđa sér í bjargiđ ţótt nćr áttrćđur sé og hann ćtlar einnig ađ bjóđa upp á listitúra í kerru sem gćđingurinn ?Mö? verđur spenntur fyrir.


