Byggðakvóti 2009/2010

Byggðakvóti 2009/2010 Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 82, 29.

Flýtilyklar

Byggðakvóti 2009/2010

Grimsey27okt09_8Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 82, 29. janúar 2010. Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:

Snæfellsbær (Ólafsvík)
Bolungarvík
Langanesbyggð (Bakkafjörður)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 163/2010 í Stjórnartíðindum.

Sveitarfélagið Árborg (Eyrarbakki)
Grundarfjarðarbær
Tálknafjarðarhreppur
Kaldrananeshreppur (Drangsnes)
Húnaþing vestra (Hvammstangi)
Akureyrarbær (Grímsey, Hrísey)
Norðurþing (Húsavík, Kópasker, Raufarhöfn)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar, og þar eru ofangreindar reglur einnig aðgengilegar.  Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2010.


Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 23:07
+0.9°SSV 2 m/s
  • Grimsey - hausmynd

    Grímsey

    Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja: Útvörðurinn í norðri með auðug fiskimið og litríkt fuglalíf. Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið til þess eins að stíga norður fyrir baug.

 

Þú breytir fætinum í stillingum