Smelltu á myndina hér að
ofan til að skoða bækling
um Grímsey á pdf-formi.
Fréttir
Mögulega kynt með kurli í Grímsey
Í vikunni sem leið fengu fjórir samstarfsaðilar, þ.e. Skógrækt ríkisins, Norðurlandsskógar, Skógræktarfélag Eyfirðinga og Akureyrarbær, styrk úr Orkusjóði til að kanna hagkvæmni þess að kynda byggðina í Grímsey með viðarkurli.
Lesa meiraGóður Grímseyjardagur
Grímseyjardagurinn var haldinn laugardaginn 28. maí og tókst í alla staði vel. Kalt var í veðri en eyjarskeggjar og gestir þeirra létu það að sjálfsögðu ekki á sig fá og klæddu sig bara vel. Sýnt var bjargsig og fengu gestir að spreyta sig, farið var í róður og margt fleira sér til gamans gert.
Lesa meiraFundað í Grímsey
Síðastliðinn fimmtudag fundaði bæjarráð Akureyrar fyrsta sinni í Grímsey og á sama tíma heimsótti skólanefnd bæjarins grunnskólann í eyjunni og kynnti sér starfið þar og í leikskóladeildinni. Fundur bæjarráðs var haldinn í félagsheimilinu Múla og á dagskránni var meðal annars umfjöllun um ýmis mál er varða Grímsey. Fjallað var um reynsluna af sameiningu Grímseyjar og Akureyrar og farið yfir ábendingar heimamanna.
Lesa meiraLeit
-
Grímsey
Grímsey er græn, grösug og einstaklega gjöful eyja: Útvörðurinn í norðri með auðug fiskimið og litríkt fuglalíf. Frægust er Grímsey trúlega í hugum ferðamanna fyrir heimskautsbauginn og kemur fólk gjarnan langa leið til þess eins að stíga norður fyrir baug.





