Þjóðaratkvæðagreiðsla á laugardag
Þann 6. mars 2010 er boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi samkvæmt lögum nr. 4/2010 um gildi laga nr. 1/2010 um breytingu á lögum nr. 96/2009. Kjörstaður á Akureyri er í Verkmenntaskólanum á Akureyri og eru kjósendur hvattir til að kynna sér fyrirkomulag í og við kjörstað.
Kjördeildir á Akureyri eru 10 auk kjördeildar í Grunnskólanum í Hrísey og í félagsheimilinu Múla í Grímsey. Kjörfundur mun standa á Akureyri frá klukkan 9 til klukkan 22 en frá klukkan 10 til klukkan 18 í Hrísey og í Grímsey. Kjósendur skulu viðbúnir því að vera krafðir um persónuskilríki á kjörstað.
Yfirlitsmynd af VMA og kjördeildum á Akureyri.
Auglýsing um kjördeildir og kjörfund á Akureyri.

