Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Heimasíða Héraðsskjalasafnsins

3.3.2010

Fyrir skemmstu var opnuð ný heimasíða Héraðsskjalasafnsins á Akureyri á vefslóðinni http://herak.is. Síðan er hönnuð af fyrirtækinu Stefnu á Akureyri og unnin í vefumsjónarkerfinu Moya. Á síðunni er að finna upplýsingar um safnið, sögu þess, starfsemi og þjónustu.

Þar er einnig að finna ýmsan fróðleik um skjöl, aðgang að þeim og afhendingarskyldu. Síðast en ekki síst má nefna að hægt er að sjá yfirlit yfir skjalaskrár safnsins, t.d. hvaða stofnanir, félög og einstaklingar eiga skjöl í safninu og fara inn á nánari skrá um skjöl hvers og eins. Fyrirspurnir til safnsins má senda á netfangið herak@herak.is.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica