Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Nóg til af bóluefni

22.2.2010

Hrafn_HafnarstrÞeir sem ekki hafa verið bólusettir gegn svínainflúensu eru hvattir til að láta gera það sem fyrst. Áformað er að ljúka við bólusetningar gegn svínainflúensu á næstu tveimur vikum. Allir eru hvattir til að láta bólusetja sig og panta tíma í síma 460 4600.

Samkvæmt sóttvarnarlækni er nú meira en helmingur þjóðarinnar orðinn ónæmur fyrir svínainflúensunni A (H1N1). Búið er að bólusetja um 130.000 manns og ætla má að á bilinu 50-60.000 manns hafi fengið veikina í faraldrinum sem gekk yfir landið á síðari hluta árs 2009. Sóttvarnalæknir telur að þær aðgerðir sem gripið var til, þar á meðal bólusetning gegn veikinni, hafi komið í veg fyrir sýkingu 30.000 manns og þar með hafi verið afstýrt 100 sjúkrahúsinnlögnum, 10 innlögnum á gjörgæsludeildir sjúkrahúsa og einu dauðsfalli.

Svínainflúensunnar verður ekki vart lengur hérlendis en veikin er hins vegar vaxandi vandamál í mörgum öðrum löndum. Þótt inflúensan sé nú ekki vandamál hér á landi má í ljósi sögulegrar reynslu gera ráð fyrir nýrri bylgju síðar á þessu ári eða á því næsta. Til að koma í veg fyrir hana er ráðlagt að sem flestir láti bólusetja sig. Nóg er til af bóluefni í landinu og fólk er eindregið hvatt til þess að hafa samband við næstu heilsugæslustöð og panta tíma í bólusetningu.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica