Allir hlæja á öskudaginn
Víða í grunnskólum landsins eru vetrarfrí einhverja næstu daga og af því tilefni verður opið í Minjasafninu á Akureyri alla þessa viku frá kl. 13-16. Opið er á laugardögum frá kl. 14.16. Í tilefni öskudagsins hefur verið sett upp örsýningin "Allir hlæja á öskudaginn" sem standa mun til 6. mars.
Það eru fáir dagar sem setja jafn mikinn svip á bæjarlífið á Akureyri og öskudagur. Þannig hefur það lengi verið. Í tilefni þessa skemmtilega dags hefur verið sett upp örsýning á Minjasafninu á Akureyri. Hún er hluti af fjölskyldusýningu safnsins "Allir krakkar, allir krakkar - líf og leikir barna". Á sýningunni gefur að líta heimagerða öskudagsbúninga sem ýmist hafa verið lánaðir á sýninguna eða eru úr fórum safnsins. Þarna má sjá öskupoka frá því snemma á síðustu öld, tunnukóngsmerki og ýmsa gripi sem notaðir voru í öskudagsliðunum.

