Hæna í Akureyrarkirkju
Hæfileikakeppnin HÆNA fór fram í Akureyrarkirkju laugardagskvöldið 30. janúar. Þar sýndi fjöldi ungs fólks hæfileika sína fyrir framan rúmlega 200 áhorfendur. Keppt var í þremur flokkum, söng og tónlist, dans og líkamstjáningu og opnum flokki. Það má með sanni segja að þetta hafi verið kvöld unga fólksins, því þau kepptu ekki aðeins heldur var langstærstur hluti undirbúnings og framkvæmdar í þeirra höndum, um skreytingar sáu tvær 19 ára stúlkur og tæknimaðurinn var 16 ára svo dæmi séu nefnd.
Þetta er í fjórða sinn sem Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðarprófastsdæmi, ÆSKEY, stendur fyrir þessum viðburði en aldrei hafa áhorfendur verið jafnmargir og nú, enda keppnin nú haldin samtímis æskulýðsmóti sem Múlaprófastsdæmi, Austfjarðarprófastsdæmi og Þingeyjarprófastsdæmi komu að. Það sem gerir þessa hæfileikakeppni frábrugðna mörgum öðrum er í fyrsta lagi að þátttakendur þurfa að vera virkir í æskulýðsstarfi kirkjunnar eða í fermingarfræðslu. Í öðru lagi þá er keppt í þremur flokkum og annars vegar um einstaklingskeppni að ræða og hins vegar um hópakeppni. Veittir eru verðlaunapeningar í hverjum flokki fyrir sig.

Kirkjufólk veitti atriði töframannsins Einars einstaka sérstaka athygli en hann sýndi ekki bara töfrabrögð heldur hafði hann lagt mikla vinnu í undirbúning á flutning töfrabragða um leið og komið var á framfæri boðskap biblíunnar. Meðal annars minnti hann á einingu kristinna kirkna með því að blanda saman klútum í misjöfnum litum þannig að úr varð einn marglitur klútur. Einnig sagði hann frá fangelsisvist Páls postula og töfraði hringi sem virtust flæktir saman í sundur um leið og hann minnti á hvernig Drottinn hjálpaði Páli úr fangelsinu.
Mikil vinna var lögð í skreytingar sem fyrr og réðust þær Jule Dörr og Cornelia Leitner, EVS-sjálfboðaliðar í Glerárkirkju í það stórvirki að búa til stórt listaverk með stöfum keppninnar, HÆNA, sem prýddi vegg safnaðarheimilisins í Akureyrarkirkju þar sem keppnin fór fram. Þá komu félagar úr æskulýðsfélaginu Glerbrot (Glerárkirkja) og ÆFAK (Akureyrarkirkja) að ýmsum undirbúningi og frágangi. Með framlagi sínu sýndi unga fólkið að það kann að taka til hendinni á bak við tjöldin og skapa þannig vettvang fyrir jafnaldra sína til flutnings fjölbreyttra listaverka á sviði!
Kynnar kvöldsins voru Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson, svæðisfulltrúi KFUM og KFUK á Norðurlandi og Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju. Formaður dómnefnda var Guðmundur Guðmundsson héraðsprestur og fékk hann til liðs við sig leiðtoga úr Akureyrarkirkju, Glerárkirkju og austan af landi til þess að sitja í dómnefndum kvöldsins.

Sigurvegarar kvöldsins í flokki tónlistar- og söngflutnings var hópur frá Hjálpræðishernum á Akureyri, en hann skipa þau Fríða Kristín Hreiðarsdóttir (söngur), Lára Ósk Viðarsdóttir (söngur), Axel Fannar Friðriksson (kongó trommur), Birkir Örn Jónsson (gítar) og Almar Ingi Ólason (bassi). En þau fluttu lagið ,,My all in all” við mjög góðar undirtektir áhorfenda. Í umsögn dómnefndar kom m.a. fram að lagið hefði verið flutt af miklu öryggi og raddir söngvara skilað sér mjög vel auk þess sem flutningur var samhæfður og vel æfður.

Sigurvegarar kvöldsins í flokki dans- og líkamstjáningar kom austan af Héraði, danshópur skipaður þeim Söndru Björk Steinarsdóttur, Valdísi Ellen Kristjánsdóttur, Alexöndru Sigurðardóttur og Steinunni Bjarkey Gunnlaugsdóttur. Þær sýndu nokkurs konar Hip-hop dans við lagið ,,Show me your money” en þessar stúlkur sem eru allar virkar í æskulýðsstarfi kirkjunnar fyrir austan hafa aldrei komið fram áður fjórar saman en þess má einnig geta að þær æfa fimleika með Hetti!
Á Facebook síðu ÆSKEY má fræðast nánar um úrslitin og skoða fleiri myndir.
Frétt af heimasíðu Eyjafjarðarprófastsdæmis.

