Blikandi norðljósa traf
Norðurljósin hafa glatt Akureyringa af og til síðustu vikurnar og þau dönsuðu yfir bænum um tíma seint í gærkvöldi. Mikilli norðurljósavirkni er spáð um komandi helgi en því miður er útlit fyrir að þá verði að mestu skýjað og því líkast til erfitt að njóta dýrðarinnar. Hægt er að skoða spá um norðurljósavirkni HÉR.
Myndirnar að neðan voru teknar við Lögmannshlíðarkirkju í gærkvöldi.






