Lonely Planet mælir með Akureyri
Í febrúarblaði ferðatímarits Lonely Planet er Akureyri í fjórða sæti á lista yfir sex staði sem þeir sem hafa ferðast til alþekktra áfangastaða á borð við París, Róm og Madríd ættu að heimsækja. Augljóst er að hér er um mikla og góða auglýsingu að ræða fyrir bæinn. Í umfjöllun blaðsins segir meðal annars að Akureyri hafi vinninginn umfram höfuðborgina Reykjavík þegar þessir staðir eru bornir saman "eftir útliti" (fegurð).
Mælt er með kaffihúsunum í miðbænum þar sem sé afslappað andrúmsloft í anda Parísarborgar, Minjasafninu í gamla Innbænum, miðnæturgolfi (Arctic Open) næturlífinu og Bautanum þar sem hægt er að bragða lunda og hrossaket.
Febrúarhefti Lonely Planet má nálgast HÉR.

