Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Hvað er þetta ESB?

2.2.2010

Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitthvert umdeildasta mál síðari tíma. En hvað er þetta ESB? Hver er saga þess? Hvernig er það byggt upp? Hvert er eðli Evrópusamvinnunar? Hvaða áhrif hefur Evrópusambandið á líf, störf og viðskipti Íslendinga nú þegar - og hvað breytist ef ákveðið verður að ganga í sambandið? Um hvað snýst samvinna þessara 27 aðildarríkja þar sem býr hálfur milljarður manna og talar 89 tungumál?

Íslendingar verða á næstunni að gera upp hug sig sinn til ESB. Bókin Frá Evróvisjón til evru hefur að geyma allt sem þú vildir vita um Evrópusambandið en þorðir ekki að spyrja um.

Dr. Eiríkur Bergmann er dósent í stjórnmálafræði og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst fjallar um þessar spurningar og fleiri á kynningu sem haldin verður kl. 16.00 þriðjudaginn 2. febrúar á 2. hæð í Eymundsson, Hafnarstræti 91-93.

Eiríkur hefur starfað sem blaðamaður, upplýsingafulltrúi hjá Evrópusambandinu og sem aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að kenna við ýmsa erlenda háskóla. Eiríkur hefur tekið þátt í margvíslegu evrópsku rannsóknarsamstarfi á fræðasviði sínu, er til að mynda þátttakandi í SENT-samstarfsneti Evrópufræða. Eftir hann liggur fjöldi bóka og greina, bæði ritrýndra og almenns eðlis, auk ritgerða, fyrirlestra og álitsgerða um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Hann hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í DV, Blaðið/24 stundir og nú í breska dagblaðið The Guardian.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica