Matur og list á laugardag
Í tilefni af sýningu Jorisar Rademaker í Listasafninu á Akureyri verður efnt til viðburðarins Matur og list í safninu á laugardag, 30. janúar. Sigríður Bergvinsdóttir áhugakona um kartöflur og listamaðurinn Joris Rademaker munu þar leiða saman hesta sína og fjalla um kartöfluna út frá ýmsum sjónarhornum.
Sigríður heldur stuttan fyrirlestur um kartöfluna og ræktun hennar og Joris segir frá tengslum kartöflunnar og myndlistar sinnar, en hún leikur stórt hlutverk í myndum Jorisar og raunar í sögu myndlistarinnar gegnum tíðina. Þá verður sýnd stutt mynd um Joris eftir Örlyg Hnefil Örlygsson, þar sem listamaðurinn sýnir þær aðferðir sem hann notar við gerð kartöfluverka sinna. Boðið verður upp á léttar kartöfluveitingar frá Friðrik V í framhaldi af fyrirlestrunum.
Sigríður og Joris fengu styrk frá Eyþingi í tilefni af viðburðinum. Þau hafa áður verið þátttakaendur í Kartöfluþinginu sem haldið var af Akureyrar Akademíunni haustið 2008.

