Koltrefjaverksmiðja á Akureyri
Undirritaður hefur verið rammasamningur milli Strokks Energy e.hf. og Akureyrarbæjar um að komið verði á fót koltrefjaverksmiðju á Akureyri. Koltrefjar eru notaðar sem styrkingarefni í iðnframleiðslu og leysa af hólmi ýmis þekkt smíðaefni svo sem ál, timbur og stál, sérstaklega í iðngreinum þar sem léttleiki og styrkur eru höfð að leiðarljósi.
Strokkur hyggst vinna að undirbúningi hátækniverksmiðju á Akureyri sem framleiða mun koltrefjar með tækni sem krefst afhendingar rafmagns til stórnotanda og metangass. Ein af afurðum frá sorphaugum Akureyrar á Glerárdal er metangas sem verksmiðjan getur nýtt í sinni framleiðslu.
Til að tryggja framgang verkefnisins er Akureyrarbær reiðubúinn að leigja lóð undir verksmiðjuna á Rangárvöllum. Strokkur mun leitast við að tryggja verkefninu fjármögnun og er rammasamningurinn sem undirritaður var í dag grundvöllur frekari vinnu við þróun verkefnisins. Verkefninu verður stýrt af Strokki e.hf. í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Akureyrarbæ.
Akureyrarbær tryggir Strokki forgang að nýtingu á a.m.k. 1,5 milljón m3 af metangasi á ári frá sorphaugum Akureyrar á Glerárdal til framleiðslu koltrefja í verksmiðjunni enda finnist slíkt vinnanlegt magn á svæðinu á hverjum tíma. Akureyrarbær eða félag í hans eigu annast gerð gasleiðslu frá sorphaugum bæjarins á Glerárdal að verksmiðjunni auk uppsetningar alls virkjunarbúnaðar til vinnslu gassins.
Sem dæmi um notkunarmöguleika á koltrefjum má nefna að flugvélaiðnaðurinn nýtir þetta efni í vaxandi mæli og er ný kynslóð af farþegaþotum smíðuð að verulegu leyti með koltrefjum sem styrkingarefni. Koltrefjar stuðla vegna léttleika að minni orkunotkun, auk þess sem umhverfisáhrif við framleiðslu eru takmörkuð.

Frá undirritun samningsins. Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Strokks, og Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður bæjarráðs.

