Mikado í bæjarstjórnarsalnum
Föstudaginn 15. janúar klukkan 12 á hádegi opnar listakonan Anna Gunnarsdóttir sýningu í Gallerí Ráðhús í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Akureyri. Sýninguna nefnir hún MIKADO. Verkin eru unnin út frá japanska spilinu mikado þar sem leikmenn spila með prik. Öll eru þau unnin með shibori tækni og indigo lituð.
Shibori er gömul japönsk tækni sem notuð er við það að búa til munstur á efni sem síðan eru lituð. Efnin eru sett á pappa hólka sem lokið hafa sínu starfi að halda textil efnum og fá nýtt hlutverk í leik sem listaverk á vegg. "Þetta er leikur minn með mikado spil" segir Anna.
Anna Gunnarsdóttir lærði textilhönnun á Íslandi og Danmörk auk þess að hafa sótt fjölda námskeiða um textil. Hún hefur síðari ár aðallega fengist við vinnslu á þæfðri ull og textil. Hún blandar saman nytjavöru, myndlist og fatahönnun með þessum miðlum.
Anna á að baki fjölda sýninga víðs vegar um heim og hefur hlotið verðlauna og viðurkenningar fyrir verk sín. Hún er annar eigandi gallerý Svartfugl og Hvítspóa í miðbæ Akureyrar og er félagi í Textílfélaginu, Myndlistarfélaginu og Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Anna var valin bæjarlistamaður Akureyrar árið 2008.

