Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Jólatónleikar Hymnodiu

21.12.2009

Ak_frostnott_feb2005Kammerkórinn Hymnodia flytur þekkta og ljúfa jólatónlist á tónleikum í Akureyrarkirkju í kvöld, mánudagskvöldið 21. desember, kl. 20.00. Þetta er kjörið tækifæri til að njóta augnabliksins á aðventunni og slaka á í kirkjunni undir ljúfum og alkunnum jólalögum.

Af lögum sem flutt verða má nefna Kom þú, kom vor Immanúel, Sjá himins opnast hlið, Immanúel oss í nátt, Heims um ból, Jólanótt, Opin standa himins hlið, Jólagjöfin, Hin fegursta rósin er fundin, Það aldin út er sprungið, Ó Jesúbarn blítt, Það reis í dögun dýrðarsól, Lúra sér lúra, Jól, jól, skínandi skær.....

Aðgangseyrir er 1.500 krónur og því miður er ekki tekið við greiðslukortum.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica