Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Kóraslóð í miðbænum

18.12.2009

Það verður hátíðlegt stemning í miðbæ Akureyrar á morgun, laugardag, þegar félagar úr Kirkjukór Akureyrarkirkju, Kirkjukór Glerárkirkju, Karlakór Akureyrar-Geysi, Kvennakór Akureyrar og Kvennakórnum Emblu, mynda kóraslóð frá klukkan 14.30-17 víðsvegar um miðbæinn þar sem hver kór syngur í um hálftíma.

Upplagt er að byrja á að fylgjast með félögum úr Kirkjukór Akureyrar þar sem þeir hefja upp raust sína við Bláu könnuna og fylgja svo kóraslóðinni sem endar með söng Kvennakórsins Emblu klukkan 16.30 við jólatréð á Ráðhústorgi þar sem jólakötturinn fylgist grannt með öllu.

Nánari upplýsingar um dagskrá Aðventuævintýris á Akureyri er að finna á vefnum www.visitakureyri.is.

Akureyrarkirkja_18des09

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica