Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Jólasöngvaka til styrktar Mæðrastyrksnefnd

17.12.2009

GluggiMinjasafnið á Akureyri stendur fyrir tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd á Akureyri laugardaginn 19. desember kl 14. Ljúfir tónar þekktra jólasöngva munu óma í Minjasafnskirkjunni þegar þau Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson syngja jólin inn og hlýja áheyrendum um hjartarætur með ómþýðum söng sínum.

Jólasöngvakan er nokkurs konar söngferðalag fyrir alla fjölskylduna sem leiðir áheyrendur um bæði létta, skemmtilega, hátíðlega en umfram allt þjóðlega jólasöngvahefð okkar Íslendinga. Enginn aðgangseyrir er á söngvökuna en þeir sem eru aflögufærir geta styrkt Mæðrastyrksnefd með frjálsu framlagi á staðnum.

Gömlu jólatrjánum á Minjasafninu hefur fjölgað enn frekar og ágætur skógur á íslenskan mælikvarða er sprottinn upp í stemningu liðinnar tíðar í sýningunni Akureyri – bærinn við Pollinn. Jólatrén eru í eigu Eyfirðinga. Margir þeirra skreyta enn heimili sín með þessum heimasmíðuðu jólatrjám sem eru allt í senn skemmtileg, hátíðleg og jafnvel á stundum undarleg á að líta. Öll eiga þau það sammerkt að hafa veitt gleði á jólunum á því heimili sem þau hafa staðið og gera enn. Á sýningunni Allir krakkar, allir krakkar – líf og leikir barna má nú sjá gamlar jólalegar ljósmyndir frá Akureyri, jólakort liðinna tíma, jólaskraut og síðast en ekki síst ófá leikföng sem vafalaust hafa veitt börnum, sem í dag eru mömmur og pabbar, afar og ömmur eða jafvel langafar og langömmur, mikla gleði á aðfangadagskvöld. Einnig stendur sýningin Barnadraumar enn yfir en þar er skyggnst inní draumaheim barna.

Fjölbreytta og forvitnilega skemmtun fyrir alla fjölskylduna má því sækja á Minjasafnið á Akureyri.

Safnið er opið 19. og 20. desember kl. 14-16. Enginn aðgangseyrir er á safnið í tilefni jólanna.



Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica