Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Opnunartímar um jól og áramót

30.12.2009

Akureyrarstofa hefur í samstarfi við Upplýsingamiðstöð ferðamála unnið yfirlit um opnunartíma veitingahúsa og gististaða, verslana og ýmissa þjónustufyrirtækja á Akureyri um jól og áramót. Þar er um að ræða gagnlegan lista sem nýtist jafnt gestum bæjarins sem heimamönnum, en reikna má með að eitthvað verði um erlenda ferðamenn í bænum yfir hátíðarnar. Listinn er birtur á heimasíðunni www.visitakureyri.is.

Jolatred09_13Flugfélagið Iceland Express verður með beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar um hátíðarnar, bæðin 23. desember og 2. janúar.

Mjög vel er bókað í flug frá Kaupmannahöfn til Akureyar fyrir jólin og er um þriðjungur farþega útlendingar.

Fáir virðast samt ætla að dvelja á hótelum og gistiheimilum þótt slíkt sé í boði en meira er um bókanir í íbúðum og bústöðum. Einnig má áætla að einhver hluti þessara gesta sé að heimsækja vini og ættingja hér á svæðinu.

Listann yfir opnunartíma um jól og áramót má nálgast HÉR.

Upplýsingar um opnunartíma sorpmóttökustaða um jól og áramót er að finna HÉR.

Loks er þess að geta að bæjarskrifstofurnar í Geislagötu 9 og Glerárgötu 26 verða lokaðar á aðfangadag og gamlársdag.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica