Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Styrkur til Hjálparstarfs kirkjunnar

15.12.2009

Hjálparstarf kirkjunnar hlaut í morgun styrk frá KEA og sparisjóðum á Norðurlandi en í framhaldi af útgáfu KEA kortsins á sínum tíma hófst samstarf á milli KEA og sparisjóðanna á félagssvæði KEA. Sparisjóðirnir hófu útgáfu á KEA debet- og kreditkortum til félagsmanna og nú hafa aðilar samstarfsins ákveðið að styrkja gott málefni á svæðinu.

Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, Örn Arnar Óskarsson, yfirmaður BYRS á Akureyri og Guðmundur Lárusson sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þingeyinga afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar á Akureyri að gjöf hálfa milljón króna sem ætluð er til kaupa á matvælum til styrktar skjólstæðingum hjálparstarfsins. Með þessari gjöf vilja samstarfsaðilar létta undir með þeim sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin.

Jón Oddgeir Guðmundsson, sem veitti gjöfinni viðtöku, segir að þörf fyrir aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar hafi aukist mikið frá síðasta ári og framlag samstarfsaðila KEA kortsins komi því sannarlega að góðum notum. Jón Oddgeir segir að stofnunin reyni að liðsinna öllum sem til hennar leiti, auk þess að hafa samband við einstaklinga sem hún telur hjálpar þurfi.

hjalparstarf_des09

Talið frá vinstri: Guðmundur Lárusson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þingeyinga, Örn Arnar Óskarsson, yfirmaður BYRS á Akureyri, Jón Oddgeir Guðmundsson frá Hjálparstarfi kirkjunnar og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica