Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Sögustund á Sigurhæðum

11.12.2009

Sigurhaedir_GisliSigurgeirsÁ sunnudaginn kl. 16.00 verður sögustund á Sigurhæðum. Þar verður fjallað um tvo ólíka menn sem báðir tengjast Akureyri. Fyrst fjallar Ásgeir Jónsson um George Schrader, sem birtist skyndilega á Akureyri árið 1912 og gaf út bókina "Heilræði fyrir unga men". Hann byggði líka stórhýsi á þess tíma mælikvarða, "Caroline-Rest", og gaf Akureyringum. Þar var hótel fyrir menn og hesta, en Schrader var ósáttur við hvernig íslendingar fóru með "þarfasta þjóninn". Hann leiðbeindi einnig ungu fólki í lífinu, brýndi fyrir fólki tannburstun og annan þrifnað og hélt skemmtanir fyrir börn.

Dr. Ásgeir Jónsson hefur kynnt sér lífsferil þessa manns, hvaðan kom hann, hvar fékk hann peningana og hvað varð um hann? Svörin fást á Sigurhæðum á sunnudaginn, en Schrader var mikill vinur Steingríms Matthíassonar og Matthías Jochumsson orti um hann erfiljóð. Heilræði Schraders eiga fullt erindi við unga menn í dag og hefur bókin verið endurútgefin með formála, þar sem Ásgeir rekur æviferil þessa dularfulla manns.

Varnharð Eggertsson var einnig frægur maður á sínum tíma, en því miður oftast fyrir lánleysi. Dagur Austan er ævisaga hans sem Þorlákur Axel Jónsson hefur skrifað. "Venni" fæddist á Oddeyri, ólst upp á Akureyri en gerðist ævintýramaður á fullorðinsárum – barðist meðal annars í borgarastríðinu á Spáni – var sjómaður, og sigldi um öll heimsins höf, rithöfundur og skáld. Venni var líka utangarðsmaður og fyrstur Íslendinga til að brjótast út af Litla-Hrauni. Þorlákur Axel kynnir þessa persónu á Sigurhæðum á sunnudaginn, en hann hefur víða leitað fanga og m.a. verið í sambandi við sagnfræðinga í Kanada, Rússlandi og Danmörku. Hann hefur líka rætt við fjölda fólks er man Venna, þar á meðal börn hans en þrátt fyrir allt sitt lánleysi var Venni í sambúð um tíma. Kaffi og meðlæti milli kynninga.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica