Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Lýðræði og mannréttindi í leik og starfi

11.12.2009

Á miðvikudag undirritaði mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, viljayfirlýsingu um samstarf mennta- og menningarmálaráðuneytis við Háskólann á Akureyri, Akureyrarbæ, Rauða kross Íslands og Ungmennafélag Íslands um að efla lýðræði og mannréttindi í skólum og í félags- og æskulýðsstarfi.

Í skýrslu mennta- og menningarmálaráðuneytis sem kom út á síðasta ári og nefnist ,,Mannréttindafræðsla á Íslandi tillögur um mannréttindafræðslu í grunn og framhaldsskólum“ segir m.a.:

Áhersla á velferð nemenda í nýrri menntalöggjöf er í samræmi við þróun undanfarinna ára á alþjóðlegum vettvangi um aukna áherslu á lýðræði og mannréttindi í skólastarfi og mikilvægi menntunar í því samhengi. Nemendur þurfa bæði að læra um lýðræði og í lýðræði. Eitt af meginmarkmiðum skólastarfs ætti að vera að skapa skólabrag þar sem grunngildi lýðræðislegs samfélags og réttindi barna til að tjá sig eru í heiðri höfð. Félags- og tómstundastarf með börnum og ungmennum gegnir ekki síður mikilvægu hlutverki til að ná þessum markmiðum og er góður vettvangur til að efla lýðræðisleg vinnubrögð, borgaravitund, mannréttindi og tjáningu.

Kompas_des09Um nokkurt skeið hefur verið unnið að aukinni mannréttinda- og lýðræðisvitund nemenda og starfsmanna á öllum skólastigum á Akureyri. Með skólastefnu sinni áréttar Akureyrarbær að innra starf hvers skóla taki mið af þörfum sérhvers einstaklings og að komið sé í veg fyrir hvers konar mismunun enda sé það markmið skólans að leggja grunn að farsælli framtíð barna og unglinga. Þessu má finna stað í ýmsum verkefnum sem unnið er að í skólum bæjarins. Skóladeild Akureyrarbæjar í samstarfi við Háskólann á Akureyri vinnur nú að því að koma upp móðurskólum í mannréttindafræðslu  og lýðræði undir faglegri handleiðslu Háskólans á Akureyri.

Samhliða þeirri vinnu sem farið hefur fram á vettvangi skólans hafa ýmis félagasamtök og æskulýðssamtök verið að þróa frekar starf sitt og aðferðafræði hins óformlega náms í þá veru að gefa mannréttindafræðslu  og lýðræði aukið rými. Rauði Kross Íslands og Ungmennafélag Íslands búa yfir víðtækri þekkingu og mikilli reynslu á þessu sviði og hafa hvorir um sig staðið fyrir fjölda verkefna og viðburða á þessum vettvangi.

Áðurnefndir aðilar lýstu yfir með undirritun sinni yfir vilja til að vinna að því að koma á samstarfsvettvangi um  mannréttindafræðslu og lýðræði á Akureyri. Markmið með verkefninu er að styrkja þennan þátt í menntunar í skólum, félags- og æskulýðsstarfi.

Á myndinni eru talið frá vinstri: Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, Helga Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands, Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica