Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Mansal á Íslandi – viðbrögð?

16.11.2009

LA_LiljaLeikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi um mansal í Ketilhúsinu á Akureyri þriðjudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Málþingið hefur hlotið yfirskriftina Mansal á Íslandi – viðbrögð? Tilgangurinn er meðal annars sá að inna yfirvöld eftir því hvernig brugðist verði við málum sem þessum, en stuðla að því við að almenningur fái leiðbeiningar um hvernig hægt sé að koma auga á hugsanlega brotaþola mansals og upplýsingar um rétt viðbrögð. Við berum öll ábyrgð – og með því að opna umræðuna er hægt að snúa vörn í sókn og uppræta glæpahringi, sem notfæra sér vonleysi og erfiða stöðu fólks til þess að selja það í þrældóm.

Á málþinginu mun dóms- og mannréttindamálaráðherra, Ragna Árnadóttir, flytja framsöguerindi ásamt Margréti Steinarsdóttur framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, Guðrúnu Jónsdóttur forstöðukonu Stígamóta, sem einnig á sæti í nýstofnuðum viðbragðshópi gegn mansali á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og Fríðu Rós Valdimarsdóttur, mannfræðingi og höfundi skýrslunnar Líka á Íslandi, sem er niðurstaða rannsóknar á tæplega sextíu Rymidmansalsmálum á Íslandi á árunum 2006-2009. Að framsöguerindunum loknum fara fram pallborðsumræður þar sem ræðumenn sitja fyrir svörum ásamt aðila frá Aflinu og fleiri fagaðilum.

Málþingið hefst með sýningu á Lilju í Rýminu kl. 15.00. Að henni lokinni, um kl. 17.20 hefjast framsöguerindi í Ketilhúsinu og eftir stutt veitingahlé verða pallborðsumræður frá kl. 18.30.

Leikfélag Akureyrar hefur að undanförnu sýnt leikritið Lilju, en það byggir á sönnum atburðum og fjallar um örlög sextán ára stúlku frá Litháen sem seld var mansali í kynlífsiðnað til Svíþjóðar. Lilja hefur vakið sterk viðbrögð og uppselt hefur verið á hverju einustu sýningu.

Við uppsetningu verksins komust aðstandendur þess að því að mansal hefur verið stundað á Íslandi um árabil, án nokkurrar vitundar almennings. Um svipað leyti og Lilja var frumsýnd fór fyrsta mansalsmálið á Íslandi fyrir dóm, og daginn sem LA frumsýndi Lilju komst ung stúlka frá Litháen í hendur lögreglunnar á Suðurnesjum. Fljótlega kom í ljós að stúlkan er hugsanlegur brotaþoli mansals og í kjölfarið kom á daginn að fjölmennur glæpahringur hefur hreiðrað um sig á landinu.

Leikfélag Akureyrar býður upp á umræður eftir valdar sýningar á Lilju, sem mælast vel fyrir. Leikhúsgestir hafa verið áhugasamir en um leið áhyggjufullir yfir því hversu útbreitt mansal er orðið hér á landi. Þetta varð kveikjan að því að ákveðið var að blása til málþings. Með því vill Leikfélag Akureyrar reyna að opna á enn frekari umræður um þessi mál og fá fram í dagsljósið reynslu fagaðila sem komið hafa að mansalsmálum, og ekki síst leita upplýsinga hjá yfirvöldum um hvernig þau hyggjast bregðast við þessum vágesti. Þetta er mál sem snertir okkur öll.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica