Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Bíódagar í Glerárkirkju

24.9.2009

Fjögur fræðslukvöld um kvikmyndir verða í Glerárkirkju næstu miðvikudagskvöld. Dagskráin hefst hvert kvöld kl. 19 í safnaðarsalnum. Fyrsta kvöldið verður 30. september. Þá mun sr. Árni Svanur Daníelson fjalla um hvernig trú og trúarstef birtast í kvikmyndum. Máli sínu til stuðnings verður hann með mikið af sýnidæmum.

Árni Svanur er prestur á biskupsstofu sem sinnir trúfræðslu á vefnum www.kirkjan.is og www.tru.is. Hann hefur sinnt rannsóknum á guðfræði og kvikmyndum um árabil og flutt fjölda fyrirlestra um þetta efni. Hann er jafnframt meðlimur í rannsóknarhópnum Deus ex chinema http://dec.is.

Undanfarin ár hefur Þjóðkirkjan veitt nokkrum kvikmyndum viðurkenningu í tengslum við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Þessar þrjár myndir verða sýndar næstu miðvikudagskvöld á eftir: Fjórar mínútur eftir Chris Kraus 7. október, Listin að gráta í kór eftir Peter Schønau Fog 14. október og Snjór eftir Aida Begic 21. október. Í upphafi verður stutt kynning á myndunum og umræður á eftir. Aðgangur er ókeypis.

Biodagar_Glerarkirkju

Úr kvikmyndinni Snjór eftir Aida Begic.

Bíódagar eru samstarfsverkefni Eyjafjarðarprófastsdæmis, Glerárkirkju og Deus ex chinema. Nánari upplýsingar á vef Eyjafjarðarprófastsdæmisins: http://kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi/.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_samkomuhusid6

Þetta vefsvæði byggir á Eplica