17. júní á Akureyri
Mikil og góð þátttaka var í 17. júní hátíðarhöldunum á Akureyri. Spáð hafði verið grenjandi rigningu en það var eins og veðurguðirnir hefðu gefið ofurlítil grið rétt á meðan á helstu dagskrárliðum stóð en þegar liðið var á dagskrána á Ráðhústorgi byrjaði aftur að rigna. Myndirnar að neðan voru teknar í Lystigarðinum, af skrúðgöngunni á leið niður Gilið og á Ráðhústorgi.











