Skólahljómsveit Austurbæjar á Akureyri
Skólahljómsveit Austurbæjar fer í vorferð um Norðurland land 13.–18. júní og heldur tónleika í Brekkuskóla á Akureyri sunnudaginn 14. júní kl. 20.00. Á mánudag verður hljómsveitin í Mývatnssveit en kemur aftur í bæinn á þriðjudag og mun þá leika víðsvegar um bæinn: Við Saga Capital kl. 11.30, Iðnaðarsafnið kl. 14.00 og í Kjarnalundi. Kl. 15.30 tekur hún á móti skemmtiferðarskipi við höfnina.
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní tekur hljómsveitin þátt í hátíðahöldum bæjarins ásamt Lúðrasveit Akureyrar, spilar í Lystigarðinum, skrúðgöngu, við Nonnahús og á Ráðhústorgi.
Efnisskrá tónleikanna verður mjög fjölbreytt og miðast við aðstæður á hverjum stað. Í henni verða ýmis létt lög, m.a. Raiders of the Lost Ark, Catles in Spain, A Klezmer Karnival, ABBA on Broadway og nýja norska Eurovisionlagið Farytale.

