Bílaklúbburinn 35 ára
Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju ökugerði og fjölnota akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar sem fagnar nú 35 ára afmæli sínu en klúbburinn var stofnaður 27. maí 1974. Bílaklúbburinn hefur allt frá stofnun verið leiðandi afl í íslensku mótorsporti, haldið frá fyrsta ári veglega bílasýningu 17. júní ár hvert og síðast en ekki síst hefur félagið barist hart fyrir því að ná hraðakstri af götum bæjarins og inn á lokuð svæði.
Dagskrá afmælishelgarinnar er svohljóðandi: Á laugardaginn klukkan 13 hefst á akstursíþróttasvæði BA Greifatorfæran og í framhaldi af henni verður fyrsta Old boys torfærukeppnin haldin þar sem allar gömlu hetjurnar keyra á gömlum og nýjum bílum og verða dekkja- og tímabrautir með gamla laginu. Old boys keppnin hefst klukkan 16. Á sunnudaginn verður Sjallasandspyrnan og hefst hún klukkan 14 á akstursíþróttasvæði BA. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á heimasíðu Bílaklúbbsins á vefnum www.ba.is.

Skóflustunguna tóku Kristján Þ. Kristinsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar, Kristján Möller samgönguráðherra og Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs og verðandi bæjarstjóri Akureyrar.

Að athöfninni lokinni afhenti Steini lögga, Þorsteinn Pétursson, formanni Bílaklúbbs Akureyrar forláta blikkljós ofan af gömlum lögreglubíl og lét þau orð falla að trúlega hefðu þónokkrir klúbbfélagar þurft að horfa á þetta ljós blikka í baksýnisspeglinum hjá sér en nú yrði allt slíkt vonandi úr sögunni og kúpullinn aðeins til minja.

