Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Akureyri helsta aðdráttaraflið

19.5.2009

Í nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Ferðamálastofu var að áeggjan Markaðsskrifstofu Norðurlands spurt hvað gerði Norðurland að spennandi áfangastað fyrir ferðafólk. Svörin voru margvísleg en langflestir nefndu Akureyri sem helsta aðdráttarafl landshlutans eða 39,4% á meðan Mývatnssveit var til að mynda nefnd af 21,9% aðspurðra.

Á myndinni að neðan má sjá helstu niðurstöður.

Nordurland_konnun_ferdamala

Rannsóknin var unnin af fyrirtækinu Markaðs- og miðlarannsóknir. Könnunina í heild er að finna HÉR.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica