Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Menningarveisla um helgina

15.5.2009

Það verður mikil menningarhátíð á Akureyri um helgina þegar Listasafnið á Akureyri opnar yfirlitssýningu á verkum Huldu Hákon en sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á sama tíma opnar fjöldi annarra sýninga í galleríum bæjarins en þau leggja áherslu á opnanir sama dag og Listasafnið. Með þessu samstarfi hefur skapast afar skemmtileg stemning í Listagilinu, svokallaður Gildagur, þar sem fólk nýtur menningu og listar sem og að hitta mann og annan. Sýningin verður opnuð kl. 15.

Á morgun mun nýtt verk skreyta VeggVerk sem er á Strandgötu 17. Þar mun Ingi Rafn Steinarsson sýna verkið Rauð teikning. Verkið er teikning unnin með "kalklínu". Frjálsflæðandi stranglínu og tækniteiknun sem myndar óskiljanlegt þekkingarform.

Á morgun opnar sýningin Himintjöld og dansandi línur í bókasafni Háskólans á Akureyri. Það eru þau Karl Guðmundsson og Rósa Kristín Júlíusdóttir sem sýna saman en þau eru einnig með sýninguna KALLI25 sem er í Gallerí Ráðhús í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Akureyri.

Aðrar opnanir á laugardaginn utan þeirra í Listasafninu á Akureyri eru:

Í Populus Tremula verður opnuð klukkan 14 samsýningin "Í réttri hæð". Þar sýna verk sín listamennirnir Aðalsteinn Svanur, Arnar Tryggvason, Gunnar Kr., Kristán Pétur, Jón Laxdal og Þórarinn Blöndal. Verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að vera hengd upp í réttri hæð. Við þetta tækifæri er einnig endurútgefin ljóðabók Jóns Laxdal, sem Populus tremula gaf út 2007 og verið hefur ófáanleg um nokkurt skeið. Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 17. maí kl. 14-17.

Ari Svavarsson opnar málverkasýningu í Jónas Viðar Gallery kl. 15.

Í DaLí Gallerý verður opnuð nar á laugardaginn klukkan 14-17 listakonan Rúna - Sigrún Guðjónsdóttir sýningu. Rúna á langan listferil að baki og er einn af frumkvöðlum íslenskrar leilistar. Rúna var fyrsti formaður SÍM og hefur hlotið titilinn heiðurslistamaður Hafnarfjarðar. Rúna sýnir m.a. flísamálverk sem hún er þekkt fyrir og þjóðhátíðarplatta.

Í Gallerí Víð8ttu601 opnar Hlynur Hallsson klukkan 15 sýninguna „Landnám - Ansiedlung - Settlement". Í lýsingu á sýningunni segir "Litla Skerið í tjörninni sem myndaðist þegar Drottningarbraut var lögð árið nítjánhundruð sjötíu og eitthvað er ónumið land. Tunglið var það einnig einu sinni og Norðurpóllinn og Suðurpóllinn líka. Hver verður fyrstur til að stíga á þetta Sker? Lítið,persónulegt skref en um leið stórt skref fyrir mannkynið? Ekki Bandaríki Norður-Ameríku heldur auðvitað Evrópusambandið. Hið nýja heimsveldi er mætt á staðinn. Þar verður settur upp fáni ESB, sannkallaður landnemafáni."

Á laugardag klukkan 15 verður opnuð í GalleríBOX sýningin "Viltu leika?" Nemendur Oddeyrarskóla og Brekkuskóla ásamt kennurum sínum unnu þessa sýningu. Er afrakstur þeirra vinnu til sýnis og er ætlað að vera einskonar leiðarvísir fyrir áframhaldandi vinnu. Því þetta er bara byrjunin, þessari sýningu er ætlað að vaxa og breytast. Öllum er heimilt að koma með verk á sýninguna eða gera verk á staðnum. Sérlega er horft til þess að fullorðnir og börn vinni saman verk og skilji þau eftir. Einnig heimilt að vinna áfram þau verk sem eru á staðnum og halda áfram með þau.

Huginn Þór Arason opnar klukkan 11-13 á sunnudaginn í Kunstraum Wohnraum sýninguna "Allt í kúk og kanil (of gott til að vera satt). Á sýningunni er hugmyndin að útfæra skissu af Evrópusambandsfána þar sem stendur "Allt í kúk og kanil" í stað stjarnanna. Hún var upphaflega gerð af tilefni bókverks Lortsins (óformlegur félagsskapur ýmissa listamanna og skapandi einstaklinga) sem sett var saman af tilefni samsýningar hópsins í Kling & Bang í október 2008. Kunstraum Wohnraum er í Ásabyggð 2.



Senda grein





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica