Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Lokatónleikar Kirkjulistaviku

8.5.2009

Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju lýkur á sunnudag með hátíðartónleikum Kórs Akureyrarkirkju. Kórinn hefur fengið til liðs við sig kammersveit og þrjá af bestu barroksöngvurum Íslands, þau Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur, Braga Bergþórsson og Benedikt Ingólfsson.

Flutt verða verk eftir tvö tónskáld; Felix Mendelssohn og Georg Friedrich Händel. Báðir voru þeir, og eru enn, virt tónskáld en það var Händel sem var poppstjarna barroktímans. Hann samdi gríðarlegt magn af tónlist sem sló svo sannarlega í gegn og er tónlist hans enn þann dag í dag mikið flutt af öllum tegundum tónlistarmanna.  Sem dæmi um vinsældir Händels þá komu 12.000 manns til að heyra frumflutning á ,,The Royal Fireworks“ og umferðaröngþveiti skapaðist á götum Lundúna. Árið var 1749.

Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 í Akureyrarkirkju.

KorAkkirkju2009

Kór Akureyrarkirkju.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica