Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Fuglinn úr Heimskringlu?

9.3.2009

Í byggðamerki Akureyrar er hvítur fugl á bláum grunni en fyrirmyndin að honum er sótt til Heimskringlu þar sem segir af fugli á Eyjafirði sem var svo stór að vængirnir náðu til fjallanna beggja vegna fjarðarins. Engu er líkara en Cosima Celine Zewe hafi náð mynd af þessum fugli þegar hún var á ferðinni með myndavélina sína í Vaðlaheiðinni fyrir skemmstu.

Cosima_fugl_feb09

Í reglum um byggðamerki Akureyrar segir orðrétt:

"Byggðarmerki Akureyrar skal vera blár skjöldur (Pantone process blue) með hvítum fugli. Á bringu fuglsins er skjöldur markaður með kornknippi. Blái liturinn er litur himinsins og fjarlægra fjalla, kornknippið tákn nafnsins Akureyri en fuglinn er tengdur frásögn Heimskringlu um landvættir. Haraldur Gormsson konungur bauð fjölkunnugum manni að fara hamförum til Íslands. Sá fór í hvalslíki. Er hann fór inn eftir Eyjafirði kom á móti honum fugl svo mikill að vængirnir tóku út fjöllin tveggja vegna og fjöldi annarra fugla, bæði stórir og smáir."

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica