Tangóhelgi á Akureyri
Tangóklúbbur Norðurlands stendur fyrir sérstakri tangóhelgi á Akureyri um helgina. Hið frábæra tangópar Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya koma norður í þriðja sinn og dansa sig inn í konudaginn með Norðlendingum. Sporin verða rifjuð upp með reyndum dönsurum og byrjendum kennt frá grunni.
Allar nánari upplýsingar um dagskrá tangóhelgarinnar er að finna á www.tango.is/tangonor2009.htm.

