Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæinn

21.2.2009

Akureyrarbær og Graeme Massie Architects hafa á síðustu misserum unnið markvisst að því að móta verðlaunahugmyndir úr hugmyndasamkeppni Akureyrar í öndvegi. Nú liggur fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi og er óskað eftir viðbrögðum íbúa og atvinnurekenda við þeim. Markmiðið er að miðbærinn verði öflugur vettvangur mannlífs, menningar og atvinnutækifæra.

Akureyrarbær býður til kynningar og samráðs um fyrirliggjandi skipulagshugmyndir í Amtsbókasafninu frá laugardeginum 21. febrúar til 4. mars. Þar eru tillögurnar kynntar á veggspjöldum í máli og myndum. Amtsbókasafnið er opið á virkum dögum frá kl. 10 til 19, laugardaga frá 12 til 17 en lokað á sunnudögum.

Midbaer_Hafnarstraeti_feb09Laugardaginn 21. febrúar munu bæjarstjóri og formaður bæjarráðs ásamt hönnuðum frá Graeme Massie Architects og skipulagsstjóra gera grein fyrir skipulagshugmyndunum á opnum fundi í Amtsbókasafninu frá kl. 14 til 15.30 og svara fyrirspurnum. Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri verða á svæðinu frá 13 til 17 þann dag.

Tillögum og athugasemdum við deiliskipulagstillöguna má skila á netfangið midbaer@akureyri.is fyrir 5. mars 2009.

Í kjölfar þessarar kynningar heldur deiliskipulagsvinnan áfram. Niðurstöður hennar verða síðan kynntar á næstu vikum formlega samkvæmt skipulagslögum. Gera má ráð fyrir að fyrir liggi samþykkt deiliskipulag á vormánuðum, svo hægt verði að hefjast handa um fyrstu breytingar í miðbænum í sumar.

Þeim metnaðarfullu tillögum sem hér eru kynntar samhliða öðrum verkefnum sem í gangi eru, er ætlað að snúa við blaðinu í miðbæ Akureyrar. Að skapa ný tækifæri til vaxtar og eflingar miðbæjarins. Það verði gert með mótun yfirbragðs sem virðir, viðheldur og styrkir þau gæði sem gera Akureyri að einstökum stað, höfuðstað Norðurlands.

Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér tillögurnar á Amtsbókasafninu og taka þátt í frekari mótun miðbæjarins.

Midbaer_Hafnarstraeti2_feb0

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica