Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Styrkir úr Menningarsjóði

4.2.2009

Akureyri_17nov05Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar og er umsóknarfrestur til 13. febrúar. Það er stjórn Akureyrarstofu sem úthlutar úr sjóðnum í febrúar og september ár hvert en hlutverk hans er að styrkja listastarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri með fjárframlögum.

Umsóknum skal skilað til Akureyrarstofu á eyðublöðum sem fást í þjónustuanddyri Ráðhússins og á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is/auglysingar/adrarumsoknir/. Umsækjendur skulu gæta þess vandlega að allar umbeðnar upplýsingar komi fram á innsendum umsóknum.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir, huldasif@akureyri.is.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica