Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Sinfóníutónleikar á sunnudag

21.1.2009

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00. Einleikari á orgel er Eyþór Ingi Jónsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá tónleikanna er Orgelkonsert í a-moll op. 100 eftir Marco Enrico Bossi og Sinfónía nr. 4 eftir Ludvig van Beethoven.

Marco Enrico Bossi (1861-1925) gat sér gott orð sem orgelleikari og kennari en stundaði einnig tónsmíðar af kappi og er hvað frægastur fyrir orgelverk sín. Konsert fyrir orgel og hljómsveit í a-moll op. 100 samdi hann fyrir hljómsveit án blásara að undanskildum hornum. Með því að sleppa blásturshljóðfærunum vildi Bossi ef til vill fyrirbyggja að blæbrigði blásturshljóðfæranna skyggðu á fjölbreytt litbrigði orgelsins.

Um 4. sinfóníu eftir Ludvig van Beethoven (1770-1827) sagði Robert Schumann að hún væri eins og grannvaxin grísk gyðja á milli tveggja norrænna risa. Með þessu átti hann ef til vill við að sú fjórða væri ekki eins átakamikil og þær sem komu á undan og eftir. En þó hún hafi heldur klassískara og hógværara svipmót en margar aðrar sinfóníur Beethovens leynir handbragð meistarans sér hvergi.

EythorIngiJonssonEyþór Ingi Jónsson er fæddur og uppalinn í Dalasýslu, þar sem hann hóf tónlistarnám sitt sex ára gamall. Hann nam síðar orgelleik hjá Fríðu Lárusdóttur við Tónlistarskólann á Akranesi og hjá Herði Áskelssyni við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk þaðan kantorsprófi 1998. Við tók nám við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð, fyrst við kirkjutónlistardeild og síðar við konsertorganistadeild, og lauk prófi þaðan vorið 2007. Hann hefur haldið hátt í 100 einleikstónleika bæði hér á landi og erlendis. Eyþór starfar nú sem organisti við Akureyrarkirkju og kennir við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Eyþór hefur einbeitt sér að flutningi tónlistar annars vegar frá 17. öld og hinsvegar nútímatónlistar og spuna, bæði fyrir orgel og kór. Hann situr í ýmsum fagráðum og nefndum og er listrænn stjórnandi Barokksmiðju Hólastiftis. Einnig er hann stjórnandi kammerkórsins Hymnodiu.

Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri lauk prófi í hljómsveitarstjórn frá Tónlistarháskólanum í Utrecht í Hollandi. Eftir það stundaði hann framhaldsnám hjá Jorma Panula í Helsinki. Guðmundur Óli hefur stjórnað frumflutningi verka margra tónskálda, stjórnað óperuuppfærslum svo og kórum og hljómsveitum áhugamanna og nemenda. Guðmundur Óli hefur verið aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá stofnun hennar.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hélt sína fyrstu tónleika 24. október 1993 og fagnaði því 15 ára farsælu starfi í nýliðnum október. Kjarni hljómsveitarinnar hefur frá upphafi verið kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri og hópur hljóðfæraleikara sem býr og starfar á landsbyggðinni. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur haldið tónleika á Akureyri og víða á Norðurlandi og fengið til liðs við sig kóra, einleikara og einsöngvara frá Akureyri og úr nágrannabyggðum og þannig stutt við og auðgað norðlenskt tónlistarlíf.

Forsala aðgöngumiða er í Pennanum Hafnarstræti. Verð aðgöngumiða í forsölu er 1.500 kr. en miðaverð við innganginn 2.000 kr. Aðgangur ókeypis fyrir 20 ára og yngri.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica