Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Dýrleif heiðruð

15.1.2009

Dýrleif Bjarnadóttir píanókennari lauk störfum við Tónlistarskólann á Akureyri nú á dögunum en þá hafði hún starfað við skólann í 44 ár. Dýrleif hóf sjálf nám við Tónlistarskólann á Akureyri árið 1951 þá aðeins 8 ára gömul og gekk síðar til liðs við skólann sem kennari undir stjórn Jakobs Tryggvasonar.

Í síðustu viku var Dýrleif heiðruð fyrir framlag sitt til tónlistarlífsins á Akureyri og henni þökkuð vel unnin störf. Tónlistarskólinn á Akureyri hefur notið góðs af frábæru frumkvæði Dýrleifar á starfstíma hennar og kann starfsfólk skólans henni mikla þökk fyrir frábært samstarf. 

Dyrleif_TonAk

Dýrleif Bjarnadóttir með nemendum sínum og Helenu Guðlaugu Bjarnadóttur sér á hægri hönd. Helena er nú kennari við Tónlistarskólann á Akureyri en var áður nemandi Dýrleifar.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_Blaakannan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica