Velkomin á vef Akureyrarbæjar

„Bernskan: Krímsóda, lindubuff, skautar og skíði. Stutt til ömmu. Æskan: Rúnturinn og Menntaskólinn. Stutt í Svarfaðardal. Fullorðinsár: Bókasafnið, leikhúsið og sundlaugin. Stutt í veiði. Framtíðin: Veitingastaðir og menningarlíf. Stutt til Kaupmannahafnar. Alltaf: Gott veður og kirkjan á brúninni. Stutt heim.” – Svavar Alfreð Jónsson

Fréttir

Norðlendingur ársins 2008

5.1.2009

nordlendingur_08_SindriCaesNorðlendingur ársins 2008, að mati hlustenda Útvarps Norðurlands, er Sindri Cæsar Magnason. Sindri vann þá hetjudáð, í nóvember síðastliðnum, að bjarga konu úr bíl sem oltið hafði út í Eyjafjarðará.

Bíllinn fór á hvolf í mittisdjúpu vatni og var konan meðvitundarlaus þegar Sindri náði að opna hurð á bílnum og bjarga konunni á þurrt. Norðlendingur ársins er jafnframt fulltrúi hóps vegfarenda sem að slysinu komu og náðu, með miklu snarræði og samstilltu átaki, að bjarga lífi konunnar.

Meðfylgjandi mynd er af Sindra með viðurkenningarskjal frá Útvarpi Norðurlands.

Senda grein





Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica